Alexandra Hólm

sjúdderarírei sjúdderaríra......:D

16.04.2007 18:28:41 / alexandra

hehe...

hey long time non seen! 

jæja ætli það sé nú ekki kominn tími á eitt blogg hénna það er nú búið að líða alltof langur tími síðan ég ritaði hér seinast....en jæja ég varð 16.ára núna föstudaginn 13 og tók ég því bara rólega útí sveit það var bara mjög nice sko...svo styttist óðum í prófin og mér kvíðir ekkert smá fyrir þeim fjanda....en nóg um það við f´örum til danmerkur núna 30 eða 31 maí man ekki alveg en við verðum því miður þá úti yfir sjómannadagshelgina hvaða kjaftæði er nú það pff....eeen jáá það eru komin lömb núna útí sveit og koma bara myndir af þeim bráðlega...uuuu...við vorum að hjálpa víðir að þrífa fjárhúsin í gær! ooog hvernig get ég gleymt þvi marr...ég fékk þennan fína síma í afmælisgjöf fra mömmu og pabba og svo var litli bróðir minn svoo tillitssamur að gefa mér 2 myndir og það var happy feet og open season skrítið að þetta voru einmitt myndirnar sem honum langaði í....:haha:

en jæja ég veit ekki um hvað skal blogga þannig að það kemur betra blogg seinna en þangað til lifið lífinu því að þið komist aldrei úr því lifandi;)

hihi...;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 15:57:14 / alexandra

naunau.....

jæja jæja ég ætla nú að skella smá bloggi hénna....bara fyrir kurtieisissakir en ég er ekki mikið búin að vera að gera um þessar mundir þá bara að hanga úti með krökkunum fara aðeins úti sveit hefði viljað gera meira af því en jáá´eg er að fara á þorrablót annað kveld svo eru steini og steinunn að koma vestur eru bara að keyra núna yfir as we speak...og jáá´eg er að fara útí breiðuvík í kveld  og jáá það verður bara stuð sko það er bara allt að gerast sko...en jáá víðir og mæja komu hénna yfir í gær og ég bauð þeim í kaffi og þau komu með kók algjört ææðiii...enda er víðir bestur hehe.....en jæja ég ætla að skella mér í strurtu og þvo af mér ófnykinn....þannig ég ætla að reyna að blogga hérna sem fyrst.....:D;):haha:

                                      

                                    alex out..................:D:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 22:02:54 / alexandra

.......!

                                                                       

jæja jæja skólinn var að byrja og er svo sannarlega satt að svona paradís varir ekki að eilífu....ég man ekki hvenær ég fór að sofa síðustu nótt en það var allaveganna seiiint....jáá svo vaknaði ég alveg grútmygluð og fór í skólann eða réttara sagt bænahús djöfulsins þar sat ég fyrstu 2 tímana og starðu útí tómið og beið þess að guð myndi bænheyra mig og ljúka þessu fljótt af þannig að ég fengi að sameinast englum hans á himninum.....en neeeiii hann hefur eikkað á móti mér kallinn og lét mig lifa....en guði séé lof það var frí í tímunum eftir hádegi og ég átti að fara í sund en ég var eikkað slöpp og hálsinn á mér stokkbólginn..og það er voont...een jáá svo soofnaði ég eikkað í kringum 2leytið...jáa og vaknaði löngu seinna hehe skulum ekkert segja samt hvenær...ömm jámm svo ætlaði ég og maggý út en við hættum við útaf veðri enda er það bra hreint út sagt viðbjóður...þegar ég sofnaði var veðrið alveg ágætt en þegar ég vaknaði var það kolvitlaust0jámm en ætli ég fari ekki úti sveit eða eikað á morgun að slappa meira af hehe0sem er bra fínt en jáá þetta blogg er nú orðið meiri vitleysan þanig að það er tími til kominnn að hætta þessu bra...

                                      th3709318.gif


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 01:23:44 / alexandra

Gleðilegt Nýtt Ár....!!!!

Gleðilegt nýtt ár drengir og stúlkur,hestar og rollur..það er loksins ég alex sem ákveð að rita hér niður nokkrar línur í tilefni nýja ársins....

mín áramót voru nú bra eins og vanalega nema það að það bættust við 3 manneskjur kristinn,svanhildur og oggulitla dúllan hún sara líf....jáá kveldið byrjaði með þriggja rétta máltið borin fram og matreidd af mín mútta...en ég reyndar opnaði baunadósina....:haha:jáá við gúffuðum í okkur hátíðargumsið af mikilli græðgi á meðan hin saklausa litla sara líf horfði á undrandi en hún fékk stuttu eftir að eta barnamat úr dós og kunni vel að meta það....:haha:

eftir matinn var aðeins legið á meltunni áður en að haldið var upp á brennu þar sem ég hitti steinunni,önnu,maggý,guðrúnu og hildi og marga fleiri....svo var haldið heim á leið og sest fyrir framan imbann með augun límd á áramótaskaupið sem að var nú skárra en marrh bjóst við....svo var farið út og sprengt upp flugelda til að fagna nýja árinu....en ein rakettan vildi greinilega byrja árið illa, það lá greinilega eikkað illa á henni..en rakettan fór af sjálfu prikinu og beint inn í garð og sprakk þar og ég var í sakleysi mínu að tendra á blysi fyrir litla bróður minn þegar að mér er ýtt og svoo bra búmm....þetta var samt asskoti magnað sko....

eftir þetta lá leið mín niður á mýrar 13 til að óska öllum til hamingju með nýja árið eða sama hvernig þetta er orðað..fór aðeins heim svo komu pétur,steini,jón davíð og davíð og ég fór með þeim út en áður en við fórum ræddu víðir og kristinn frændur mínir við þá og var það nokkurn veginn sonna "ef þú lætur ekki frænku mína í friði þá er mér að mæta" en þeir voru auðvitað að meina þetta í gríni og vona að engan hefur sakað....

.við krakkarnir vorum bra á röltinu og hittum guddu og maggý....svo seinna mættum við táza og fleirum og allir voða hressir við kíktum aðeins upp á ball sem að ég komst ekki einu sinni á vegna þess að foreldrar mínir vildu ekkki fara með mig þangað...:whut:eeen jáá við spjölluðum við fólkið og hittum aðeins steinunni mína og hana önnu...svo fór ég,pétur og jón davíð eikkern tímann heim og ég var svo heppin að fá far heim með sveini frændi ég hefði ekki meikað það heim gangandi ég var orðin asskoti þreytt og svoo fór ég inn og ég var varla búin að leggja hausinn á koddann þegar eg var steinsofnuð

en ég nenni ekki að blogga meira sem kemur oooft fyrir hja mér en farið bra vel með ykkur börnin góð verið sæl....:haha:

          


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 13:47:14 / alexandra

hohohó....

jáá góðan daginn gott fólk hvað segja partýdýrin í dag....tja ég segi allt fínt en vindum okkur nú í bloggið....ég sit nú á skólabekk í patreksskóla í enskutíma og fengum við leyfi fyrir því að vera í tölvum heeelvíti fínt sko en jáá ég kom heim í gær og ég er að öllum líkindum búin að týna símanum mínum en þá hef glataað honum í baldri en ég sofnaði þar hehe......alex er þar sem vesenið er...þetta er bra sannur boðskapur hefur nánast meira notagildi heldur en sjálfur jólaboðskapurinn.....jáá svona er lífið köflótt eins og skotapils og með alla liti regnbogans....en jæja ég býst við því að planið hjá mér í dag verði þannig að ég fari heim geri eikkað konfekt með litla bróður mínum þarf svoo að hjálpa mömmu eikkað að baka og svoo kíki ég kannski til steinunnar hinnar yndislegu....það er að segja ef að hún vill hitta svona skoffín eins og mig hehe:haha: jáá svoo hefur hann pétur minn frábæri frændi bra ákveðið að skilja mig eftir aleina og eirðarlausa hér á patreksfirði og ákvað að skella sér í bæinn sér til skemmtunar og var hann svo mikill bastarður að hringja í mig þegar hann var kominn í bæinn til að tilkynna mér ánægju sína...en ég elska hann þrátt fyrir það.... jæja ég bra gjörsamlega nenni ekki að blogga lengur þannig ég blogga bra seinna eikkað betra og lengra blogg.....það er að segja ef að það er áhugi fyrir þvi en bra bæjó...;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 20:14:11 / alexandra

jóla,kjóla hvað???

jæja ég er nú í stykkishólmi börnin góð...og býð í ofvæni eftir kallinum mínum á hvíta hestinum hvenær ætli ég muni finna hinn rétta hmmm..hehe þetta var bra smáá sprell sem er stolið frá miinni kærkomnu maggý en ég er hérna í hólminum að reyna að kaupa inn eikkerjar jólagjafir og það er ekkki beint mikið úrval hérna....ég kom hingað á fimmtudaginn og fer á morgun (sunnudag) en´það er nú ekki mikið hægt að gera hér því miður..enda þekkir marr ekki marga hér...en þetta er alveg ágætt svosem steinunn mín heittelskaða er komin heim á bæ og gett ég ekki beðið eftir því að komast heim til að knúsa hana og skella á hana einum rembingskossi....og svvooo eru bra 6 dagar í heimkomu önnu pönnu hjartaknúsara....og þá verða tripodarnir (ég,steinunn og anna) loks sameinaðir á ný....óó þetta verður fallegt....en jáá það nálgast í þessi blessuðu jól og hvað þá áraMótin og vonandi skemmtir marr sér eikkað yfir þessa jólahátið enda er nokkur önnur hætta bestu vinir mínir verða allir hjá mér og svoo auðvita fjölskyldan....en nóg af þessu bulli ég blogga meira seinna melkorka er að reka mig úr tölvunnni þannig lifið heil vinir mínir og gangið hægt gegnum gleðinnar dyr því það hafa margir dottið um hálan þröskuldinn...(smá önnu speki) 0

                                          

      ´ ég ákvað að skella inn einni jólavísu upp á djókið 

                  

                              Jólum mínum uni ég enn,

                     og þótt stolið hafi

                     hæstum guði heimskir menn

                     hef eg til þess rökin tvenn 

                     að á sælum sanni er enginn vafi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 14:00:22 / alexandra

ertu fokking þroskaheftur...!

jæja,jæja ég er búin að vera nú frekar löt við þetta bloggdæmi og biðst innilegrar afsökunar á þessu atferli mínu,en því miður hefur ekkert verið nógu og spennandi og skemmtilegt til að ég geti ritað það niður....en hvað um það lífið er til þess að lifa því en ekki til að glápa á tölvuskjáinn líkt og freðinn ljósastaur á öngstrætum bæjarins8| þetta var djúpt...en jáá það var galakvöld í gærkveldi alltílæsko ég var sett í það starf að rétta öllum púnsglösin ooog að hella í þau mögnuð lífsreynsla þetta haha:haha: þetta var alveg ágætis kvöld þangað til að allt fór í eikkerja vitleysu og allir fúlir útí alla en ég vona að það sé alltílæi núna vegna þess að marr nennir ekki svona drama...uuu jáá það var nú eikkað þvílíkt aksjón í gær milli vissra einstaklinga nefni engin nöfn allaveganna verður þetta kvöld eftirminnilegt hehe:haha: samt ef að einhver var klæddur svona ekta gala þá var það hún Guðrún Helgadóttir hún var svoo falleg í gærkveldi í fermingakjólnum sínum (prinsessukjóll geggt dúlló) og með slöngulokka í hárinu sem að ég var að dunda mér við að gera í gær hehe:haha: svo voru ég og maggý svipað klæddar föttuðum það þegar við vorum komnar uppettir hehe....en það voru allir svoo sætir og fínir og verð ég að segja að maður kveldsins hafi nú verið hannn pétur frændi hann hélt mér í góða skapinu í allt kveldið (allveganna meirihlutann) eins og honum einum er lagið....elska þig krúttið mitt...en gvuðð það er svoo stutt þangað til steinunn kemur heim ég er´búin að sakna hennar svo mikið að engin orð fá því líst....get ekki beðið eftir að fá steinunni og önnu heim en ég gæti ekki verið stoltari af þeim þær eru úti í þessum harða heimi að læra að lifa lífinu óó mér líður eins og stoltri móður...:P ömmm...hvað skal nú segja ég man ekki neitt hvað ég ætlaði að blogga kannski er ég bra komin með Alzheimer....hver veit8| jáa það var viss manneskja sem hélt að ég hefði verið full í gær en svo var ekki haha...en það er náttla spurning hvað var í þessu púnsi8| en jæja nenni þessu ekki lengur ég ætla að fara að sturta mér í klósettið...óskið mér góðs gengis8|

                                                    Alex out;)

            


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 21:50:40 / alexandra

hehe....

halló,halló langt síðan marr hefur bloggað hehe enda það lesa þetta nú ekki margir held ég....en jáá ég var fyrir sunnan núna um helgina...ég var þar alveg frá fimmtudegi til mánudags og var reyndar í stykkishólmi hjá ömmu í gær og fór með baldri heim í dag en ég þarf að hafa ofan af fyrir guðrúnu og maggý hénna þannig ég blogga á eftir eða á morgun svona details...en jáá gúden nátten og bæjó...!!!!8|

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 23:14:53 / alexandra

ég er ööönd....!!!!

nú er þessi dagur kominn að kveldi og ég er þreytt og tala eins og önd vegna veikinda minna en ég er öll að koma til og fer í skólann á morgun sem að er bra ágætt ég var að koma bra inn um dyrnar en ég fór í heimsókn til hennar maggýar upp á vist...við höfðum fátt að gera nema vorum eikkað að vinna í þesssari nýju síðu okkar www.blog.central.is/anna_lover og svoo eftir stutta stund fór okkur að þyrsta í kjarnadrykkin góða og besta vin minn kókið gamla en það hefur hjálpað mér í gegnum mörg erfið tímabil.....við fórum niður á sjoppu sem að ég mátti reyndar ekki vegna þess að ég er veik en þörfin fyrir kók dró mig þessa leið...um leið og við komum inn á sjoppu sá marr gísla og almar...við keyptum kók og snakk og almar og gísli kíktu eikkað aðeins með okkur upp á víst og heilsuðu upp á steina og svo fór þessi tími í það að skemma þetta veluppábúna rúm hennar maggýar :D fyrirgefðu maggý þetta áttti ekki að fara svona núna þarftu að skipta á rúminu þínu aftur sveiattan eeen jáa hún ólöf yndislega gaf sér þann tíma í það að skutla mér og guðrúnu upp á vist og aftur heim og á hún skilið mikið hrós fyrir þann drengskap....een jæja ég er að pæla í því að fara að sofa eða bra læra kanski jafnvel hehe hef ekki alveg verið að standa míg í því en allaveganna þá er ég farin bææjó:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 23:41:33 / alexandra

im a sick bastard..!!!

 dagurinn í dag er alls ekki góður, vegna þess að ég er VEIK!!!!!......varla búin að fara fram úr rúminu í dag vegna hausverks en ég hef gleðifréttir hún anna mín kemur á morgun vestur og get ég ekki beðið eftir að knúsa þessa yndislegu hjartavinu.....eeen jáá mig langar alveg mongó mikið á ísó að hitta hana steinunni og ef einhver veit um far þá endilega að láta mig vita..uuuuuu......mér finnst hæpið að ég fari í skólann á morgun en hver veit kannski verð ég nógu og frísk eeen ooojæja ég sit núna í algeru aðgerðarleysi og horfi á imbann eins og mér væri borgað fyrir það..... jáá een ég er að pæla í því að fara bra að reyna að sofa og láta mér batna eða eikkað þannig bæjó

             


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 20:56:52 / alexandra

tja hvað skal marr nú segja...!!!

jaháá það er kanski kominn tími á það að blogga aðeins hénna er bra svo andskoti löt að ég hef ekki ennþá hafið mig uppúr sófanum til að gera nokkurn hlut:haha:....eeen jáá það er mjög fátt búið að gerast síðustu daga hehe en jáá ragga ást kom og gisti hjá mér hénna um helgina og það var alveg yndislegt að hitta hana en það gerist mjög sjaldan...oooog steinunn bjútíií er hénna núna í helgarfríi og ég er að vona að hún fari að svara í þennan síma sinn mig langar nú aðeins að hitta hana en hún fer aftur á ísafjörð á morgun:whut:...það er sorgardagur en ææi ég er ekki að nenna þessu neitt eeen jáa mig langar svo að fara á akureyri að heimsækja hana önnu mína..og reyndar líka á ísafjörð til steinunnar minnar...hmmm allaveganna sakna ykkar stelpur mínar og vonandi hitti ég ykkur bráðum en nenni ekki að blogga meira þannig bæjóó:haha:

heyy jáá pabbi minn átti afmæli í gær...þannig til       hamingju með afmælið í gær pabbi:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 01:51:28 / alexandra

jáá litli smalinn er kominn heim af fjöllum...!!!!

jæja,jæja ég ætla að skella fram einu bloggi hénna fyrir hana önnu mína...en það er alveg satt ég segi það nú og ég sagði það áður en ég ELSKA ÞIG SÆTA MÍN..og við skulum nú ekki gleyma henni steinunni yndi´,hún er trúarbrögð fyrir mér ef satt skal segja....en jáá á síðustu helgi þá voru smalamennskur í sveitinni sko og voru smalar vaknaðir hressir og ferskir....fyrst var selárdalurinn smalaður með tilþrifum. dagur 2. voru hviltarnar og bakkadalurinn smalaður og rétt eins og í fyrra var ég,maja og skotta saman upp í fjalli og þegar 3 vitfirringar eru settir saman hátt á opnu svæði þar sem enginn sér er fjandinn laus...úff það var stuð á okkur sko maja sá um alla vinnuna og ég sá um að sitja á grjóti í makindum mínum og teygja mig endrum og eins í ber svona til að hressa sig við.....ömmm jáá dagur 3. tammtararamm það var enginn annar en FÍFUSTAÐADALURINN!!!!....ég var send í það að stjórna fólki og vonandi hef ég gert það bra ágætlega en ég er nú kölluð verkstjórinn en það er fínt svo lengi sem að það sé ekki harðstjórinn eða eikka...en jáá ég og mitt fólk smöluðum krossavíkina og bakkana alla leið inn á Fífustaði....svo röðuðum við okkur upp í fyrirstöðuna...og ég þurfti að labba lengst upp í gil að gá að eikkerju fé og svo var ekkert fé og ég var svo þreytt að ég nennti ekki að færa mig neðar þanig að ég sat á eikkerju helvítis grjóti sem eftir stutta stund byrjaði að hreyfast..þannig að ég færði mig...uuuu svo var bra farið í kaffi eftir að við vorum búin að smala þessu yfir brúnna...jáá maturinn er alltaf jafn ´góður eftir rækilega smölun úújéé....uuu jáá svo fór ég með maju í fyrirstöðu í bakkadal og biðum þar dágóða stund eftir að rolluskammirnar streymdu inn dalinn...og ég stóð stolt í hlíðinni í of stórum bláum kuldagalla með gula talstöð í hendi og gargaði á kvikindin af öllum lífs- og sálarkröftum....en jáá á milli þess að smala og éta var marr eikkað hangandi utan á Arnari frænda því yndislega kvikindi..en ég var að reyna að sanna fyrir honum að ég væri sterkari en hann og reyndi í sífellu að meiða hann en yfirleitt hafði hann betur bastarðurinn:evil: jáá það var gaman af þessu...víðir á samt held ég metið í labbinu en hann labbaði og klifraði mest held ég ef að eikað er....og ég var að væla eftir smá labb og heimtaði svo bra að fá að smala meira...ég var mjög tæp á taugum þessa helgina..ég biðst afsökunar á því haha:haha: ömmm ég nenni ekki að blogga meira í bili en geri það mjög fljótlega en annars gangi ykkur öllum í haginn og megi guð vera með ykkur....verið sæl og góða nótt..:haha:

 

                         


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 16:08:01 / alexandra

jaaa guden tag!!!

aaa það er laugardagur í dag:)..sem þýðir að það var föstudagur í gær:lol:, hreint út sagt merkilegt ekki satt.:o  í gær þá var starfsdagur kennara þannig að við fengum FRÍ!!! í skólanum waaa...:Dþað var æði vaknaði eikkað um 7 leytið í gærmorgun átti að passa guðbjart en jáá:$ ég er ekkki svo góð barnapía þannig að ég var hálfsofandi meira og minna allan morguninn:lol: og svo í kringum 12 skreið ég aftur upp í rúm og svaf til 2 hehe;) jáá ég get sofið asskoti mikið ömm...jáá mín heittelskaða og fagra steinunn kom í gær og mátti fólk sjá þessi þvílíku sólheimabros á okkar fési er það mætti okkur :haha:ójáá það var æði að hitta hana og er hægt að segja að hún verður fallegri með hverjum deginum:P en jáá við þræddum aðalstrætið en hún steinunn sagðist þurfa að bæta upp glataðan tíma á aðalstrætinu og ég gat auðvita ekkert neitað henni um þessa litlu bón hennar;). svoo kíktum við upp á sjoppu til maggýar nokkuð oft..:P uuuu jáá skooo...svo mættum við eikkerju fólki og er ég öll útkrözzuð á bringunni eftir alla8| en jáá hún maggý yndi skrifaði nafn sitt á bringu mér og allir sáu það og heimtuðu að fá að árita mig..8|..hreint út sagt ótrúlegt..ööö maggý gisti hjá mér í gærkveldi algjör dúlla hún var að hníga niður af þreytu haaha:D jáá en ég þarf að finna mér eikkað að gera í dag þannig að ég ætla að hætta að blogga í bili og setjast niður og hugsa:| þetta verða átök:S

                         200002429.jpg 

                      en bææææjóóó:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 15:44:15 / alexandra

ooo happy day...:D

jáá viti menn steinunn og hafrún koma í dag og ég bra get ekki beðið eftir að hitta þessu litlu krúsikrullur...een jáá ég vildi bra koma þessu á framfæri enda ekki annað hægt þegar svo merkilega mannverur eru að koma á litla pleisið patró..en hehe ég blogga bra svo seinna...:haha:

   


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 16:00:02 / alexandra

þessir mánudagar...:|

ooh ég hata þetta drasl ég var búin að blogga hénna alveg helling en nei nei dettur þetta ekki bra allt út....en jæja það er mánudagur í dag,dagur leiðinda,þreytu og pirrings semsagt til að gera langar sögu stutta hundleiðinlegur..þá þarf maður að mæta í skólann eða vinnunna dauðþreyttur eftir helgina annaðhvort eftir of mikinn svefn eða þá eftir að hafa fengið sér aðeins of mikið í tána....ég er ekki séstaklega mikil mánudagsmanneskja oog reyndar ekki þriðjudagsmanneskja heldur o.s.frv. hehe nei ég er meira fyrir helgarnar og frídagana en jæja ég byrjaði þennan dag á því að auðvitað vakna og þá meina ég að glaðvakna og ég bra klæddi mig,burstaði tennurnar,borðaði og þetta vanalega svo mætti ég alveg ógesslega hress í skólann alveg glaðvakandi...eeeen þegar það fór aðeins að líða fram á 3 tíma þá varð ég orðin alveg drulluþreytt og var á tímabili farin að sjá ofsjónir af þreytu...tja kannski ekki alveg en ég var dáldið þreytt ömmm...ég gerði nú harla fátt um helgina ég fór útí sveit á föstudaginn fór svo með bjarka tvisvar á patró á laugardaginn...öss það sem að maður gerir fyrir smá menningu hehe:haha: ég segi nú bra svona...eeen jáá uuuu..eee ég hef ekkk hugmynd um hvað ég skal nú ykkur segja nema það að ég sakna stelpnanna semsaagt hennar steinunnar,önnu,kollu,hafrúnar og röggu:cry: jáá þeirra er sárt saknað í litla svarta hlutnum mínum sem að kallast hjarta....8| en jáá skyldan kallar ég þarf að fara að sinna eikkerjum húsverkum þannig verið sæl að sinni:P

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan